ღHeimur fullur af-♥ENGLUM♥
icon♥
12.02.2008 14:43:11 / -gob

---


musicnotes.gif musicnotes picture by Eleen_star Konan sem klippir mig - Dabbi T musicnotes.gif musicnotes picture by Eleen_star

ég er ástfanginn af konunni sem klippir mig, ástfanginn af konunni sem klippir mig, ástfanginn, já ástfanginn af konunni sem klippir hárið mitt <3

sama hvað ég vona er enginn hittingur, nema nátturulega þegar ég fer í klippingu, og ég missi mig, fell í yfirlið, ástfanginn af konunni sem klippir mig <3

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 21:07:41 / -gob

Nýtt!!

ég er komin með aðra síðu http://www.123.is/gob

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 11:59:35 / -gob

Gremja - Dabbi t <3

Gremja - Dabbi T.
Ranka við mér eftir alltof fkn langann tíma sá það ekki en allir aðrir voru að sjá það tvístrast búna að veina nóg oftast bara við þig og búinn að heyra nóg allir búnir að vara mig við og þau sögðu svo satt en ég gekk bara blindur og varði þig alltaf sama frá hvaða skyttu alveg frá fyrstu sjón sá ég að það var eitthvað og í langann tíma virkilega trúði ég á engla. Það eru fífl sem trúa þó mörgum finnist það skrítið þá veit ég það því núna er það ég sem er fíflið innihaldið sem telur, nú er ég farinn að skilja að þú er rosa falleg en fkn skrímsli að innan Væri ekkert reiður ef þú værir bara einhver kelling það er lína á milli ást haturs og nú veistu hvað ég stend tík Glatað, og það er stórt orð að segjast hata En skil pabba þinn fullkomlega að vilja ekkert með þig hafa líkist ekkert mömmu þinni og hún fær engin meinyrði og í þetta skiptið féll eplið alveg fkn langt frá eikinni ræði en hún er ekki við hæfi en ég vorkenni stráknum sem á endanum fær þig. Dróst mig á eyrunum og eignaðist óvin og nú fyrst skil ég afhverju fyrrverandi sló þig til blóðs bitch og ég vona að það hafi verið mikið. Af því bara að þú átt það skilið en ekki slökkva því allt lagið er eftir og Frikki fær plús fyrir að hafa hitt þig í smettið er þú sagðist elska mig þá gerðiru daginn minn en það eru líka orðin sem að gerðu fkn lagið mitt þú átt ekkert gott skilið því að nú lærði ég að hata, þú særðir mig svo ég særi þig til baka ævintýrið glatað þó það halltraði hingað og þú veist að hann Tómas hatar þig líka og mér finnst það skrítið að þú eigir heilann bíl að baki bitch það eina sem þú átt þú átt skilið er hráku beint í andlitið kannski finnst fólki þetta ljótt, vilja sjá textann aðeins fallegri en hún er það ekki og honum er fokk sama hvað þeim finnst, fannst þú engill alveg fullkomin draumadís. Ást er líðan og þú ert búin að nauðga því bregst illa við og finnst það ekki erfitt væri ekki svona reiður ef þú hefðir ekki blekt mig það sem þú gerðir var ekki vinalegt ef ég gæti hoppað til baka myndi ég aldrei vilja kinnast þér ég vil bara segja þér þó að ég sé trúaður, hættu að skera grunnt, gefstu upp og skerðu djúpann skurð. Mér er svo fkn skít sama þó að þú sért að hylja ör, því að eftir þetta lag þarftu nokkuð mörg svitabönd og ef það er mér að kenna get ég ekkert gert í því slökktu á listanum og settu þetta lag á repeat. Ég veit þig dreymir um að deyja en kommon gerðu meir, hættu að dreyma tík og gerðu drauminn að veruleik og í þetta skipti mun enginn furða mannslífi því þú ert klárlega ógeðsleðslegasta mannvera á jarðríki vona að þú ristir djúpt eftir allri hendinni rífuð bandið þitt, átt ekki skilið að jesú elski þig og ég ættla bara að vona að þér verði kastað fyrir ljónin, ég hata þig svo mikið að mig klæjar í blóðið og það er bölvuð lýgi að þú sért góð, en það er ekki til orð í heiminum sem að lýsir hvað þú ert ljót ef það er engill sem ég á að kalla þig þá eru vængir þínir svartir í sama lit og hjartað þitt var hækjan þín en hey vælum bara í Davíð, en núna er hækjan farin vona að fallið verði hart tík og kannski er lagið mitt ekkert rosalega skynsamlegt en tík tilfinningar eru ekki eitthvað til að spila með og kannski fær þetta lag þig til að hata mig en ekkert sorrý því ég hef aldrei gert shit til að skaða þig mest af þessum tíma var bara eintóm angist og ég ættla að vona að ég þurfi aldrei aftur að fkn sjá þig það var ást ég veit og stundum var hún góð en á þessu augabliki er ég fkn feginn að hún dó sögðum ýmislegt fílaðir væminn gaur ef ég horfi aftur í augun þín er það bara til að hrækja í þau svo veit ég nákvæmlega í hvaða átt ég ættla að ganga, áfram og þér er sko ekki boðið þangað Er þér kalt mér er svo fkn skítsama Ertu hrædd mér er svo fkn skítsama Uppá spítala mér er svo fkn skítsama Því að ég bara bíð eftir að stoppar í þér íshjartað Sagðir ýmislegt og ég er ekkert að botna í því og fyrir næsta gaur skaltu spara stóru orðin tík Ég hugsa um góðu tímana en það ætti að vera öfugt Í hvert skipti sem að ég hugsa um þig þá drukna ég í svörtu þyrfti lítið til að breita þér þó að þú sért hötuð það eru sex að stolka þig, það þýðir sex brotin hjörtu Og þá verð ég ekki eini sem mun hata þig og ef þú brosir aftur til mín mun ég skekkja í þér tanngarðinn taka þessa grímu þína og brjóta hana í mola svo að fólk geti séð hvað ég hef virkilega þolað þér langar í vænghaf en það er ekki glæta, ég þekki engann engil sem lifir fyrir að særa svo engill drekktu þeim hugsunum, englar geta gert mistök en ekki 120 Sama hvert þú ferð og með hvaða fólki þú chillar skaltu vita að ég hata þig meira en allt saman vinan því núna er ég ekkert að spá hvernig ævintýrð fer. Þetta lag var bara gert til þess að særa þig sem mest ef ég gæti myndi ég drepa bangsímon til að hefna mín þetta er fjórða heila lagið sem ég geri um þig mellan þín vildi óska að ég hefði sparað tárin sem ég hef eytt, svo ég gæti mtfkn drekkt þér með þeim. Mínar hugsanir til þín eru ekkert nema illar þótt þú elskaðir mig píka, særðiru mig síðan, og ég hef bara ekki tíma í að vera að skriða ekki hægt að stinga meira í sálina mína Mínar hugsanir til þín eru ekkert nema illar þótt þú elskaðir mig píka, særðiru mig síðan, og ég hef bara ekki tíma í að vera að skriða ekki hægt að stinga meira í sálina mína Mínar hugsanir til þín eru ekkert nema illar þótt þú elskaðir mig píka, særðiru mig síðan, og ég hef bara ekki tíma í að vera að skriða. ,, ég elska þig....” Og einu sinni, þá gerði ég það líka

 

 

http://www.youtube.com/watch?v=mAWUqu1i0kY


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 00:27:04 / -gob

...

Jæja ég er í smá pásu.. en fer samt að
blogga fljótlega...
              

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 23:52:54 / -gob

dúdúdú...

Hæ hæ smá blogg.. En ekki langt. Það er allt fínt að frétta af mér og Óðni. Við erum búin að fara 2 sinum á göngu með vagninn. Ari kom núna síðustu helgi með kærustuna sína Öru. Það var bara fínt. Skrapp með þeim í pottin á Vermó, og fór svo með þeim á rúntinn. Fanney er búin að hressast, þetta kom samt fyrir aftur. En það var miklu vægara heldur en í fyrsta skiptið. Hjartað sló nefnilega ekki alveg eins hratt, en það lagaðist svo bara af sjálfum sér. Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa meira. Ég er eithvað svo tóm í hausnum núna. Blogga bara meira seinna heyrumst.

 

>Guðrún<

málshætti:

  • Enginn er svo nískur að hann tími ekki að spara.
  • Oft gerist sjaldan nema stundum.
  • Oft má lík kjurrt liggja.
  • Oft er grafinn maður dáinn.
  • Smá,, myndir:

    Ari og Óðinn

    Óðinn sæti;;XD

    Sætastur;D


    » 9 hafa sagt sína skoðun

    09.11.2007 15:36:24 / -gob

    Blogg:)

    OMG það stittist óðum í sjálfráðaaldurinn 18 ára. Ég er ekki búin að ákveða hvað verður gert á þeim merka deigji. Ætli það verði ekki bara djammað eða. Æ ég sé til. En já það var ekkert svaka skemmtilegt gærkvöldið hérna hjá mér. Óðinn var rosalega órólegur, og Fanney litla systir mín var send með sjúkrabíl til Akureyrar. Guð það byrjaði þannig að Fanney fór að kvarta um höfuðverk svo kom í ljós að hjartað var á 100 hjá henni, og hún átti erfitt með að anda mamma hringir í lækninn hérna á Ólafsfirði og hann vill fá hana upp á Hornbrekku (sjúkrahúsið hérna). En oki svo þegar þangað er komið tekur hann, hana í hjartalínurit sem kom ílla út, svo byrjar Fanney mín að versna. Og hún byrjaði að skjálfa öll. Þannig að læknirninn kallar út sjúkrabíl. Og hún gisti á spítalanum, á Akureyri í nótt. Hún er búin að vera í alskonar prófum í dag, en það er ekki komin nein skíring á þetta. Nema það er bara vitað að hjartað fór á annan gang. En ekkert afhverju þetta gerðist. Ég fékk gjörsamlega áfall í gær þegar ég sá hana. En hún verður samt sennilega útskrifuð í dag, eða ég vona það. Vona  að þetta lagist bara. Svo er hann Ari minn að fara að koma á eftir með kærustuna sína Öru:). Mig hlakkar ýkt til að sjá hann. En annars er svona nokkuð gott að frétta en Óðinn er enþá lasinn. Vona að þetta fari nú að lagast hjá litla stráknum mínum. en mynd í lokin heyrumst síðar:).

     

    p.s 3 málshættir :

     

  • Heima er best í hófi.
  • Sjaldan malar kötturinn gull.
  • Betra er að ganga á fjöll en hurðir.
  •  


    » 6 hafa sagt sína skoðun

    04.11.2007 16:23:28 / -gob

    Jæja gott fólk komin nóvember!

    Það er kominn nóvember, er fólk að átta sig á því:O  god! Það verða bara komin jól áður en maður veit af, svo bara nýtt ár vhúhú. Svo er það sem ég er búin að bíða eftir, að verða 18 ára. Já skvísan er að verða sjálfráða. Ekki er það slæmt þegar maður er orðin mamma. Já 22.nóvember verð ég 18 ára. Eru þið að trúa þessu?. Mér finnst ég bara verða orðin hund gömul. Allt svo fljótt að gerast.

    Veðrið er ekki búið að vera neitt skemmtilegt. Skíta kuldi, hálka og snjór inn á milli, frekar leiðinlegt.. Það snjóaði svoldið um daginn, og ég get svo svarið það að ég komst í smá jólaskap og rakst á eitt jólalag og ákvað að hlusta á það og þá var ég komin í smá fýling. Þessi jól verða æðisleg, gott að vera hjá mömmu og pabba og allri fjölskylduni um jólin.

    Óðinn, hann stækkar og stækkar, hann er svo yndislegur. Hlakka til að fara að versla jólafötin á hann. Hann verður sko algjör herra. Hann er ekki búinn að vera hress síðurtu daga. Litla dúllan mín er búin að vera að þjást af hita, kvefi og hósta. Svo ég er búin að vera andvaka yfir honum síðustu nætur. Hlakka svo til þegar hann fer að hressast. Svo erfitt að geta ekkert gert þegar, hann skælir svona sárt.

    En jæja smá málsháttur í lokin:)

    -Betra er að drepa tímann heldur en sjálfan sig-

    spark.jpg

    -<Guðrún>-


    » 16 hafa sagt sína skoðun

    31.10.2007 18:25:46 / -gob

    Góða kvöldið...

    Jæja ég ætla að blogga smá.. Óðinn hann stækkar og stækkar, hann er búinn að þyngjast um 500-grömm síðan að hann fæddist það er sko mjög gott. Hann ætlar bara að verða stór og sterkur. Ég sem hélt að hann væri ekki að fá nó hjá mér, æ svona er þetta smá mömmu stress af og til. Áhyggjur af hinu og þessu sem er algjör óþarfi. Svo er hún Solla vinkona, að fara að eiga núna á næstu dögum ég er svo viss um að hún muni eiga núna í kvöld. Þetta er alltaf svo spennandi. Ég er samt að verða brjáluð á þessu veðri sorry, en ég verð aðeins að æsa mig, sko ekki nó með það að það sé hellings snjór heldur þarf líka að vera alveg klikkuð hálka. Ég var á leiðini frá Dalvík í gær og ég meina það ég dó næstum því!. Mætti einhverjum risa flutnigabíl með teingivagn, og hann var sko ekki að víkja. Þegar hann keyrði framm hjá mér sá ég ekki glóru, það var líka svo hvast. En oki ég snar hemlaði svo þegar ég sá hvar ég var. Munaði pínu pons að ég væri farin alveg útaf. Sem betur fer var Óðinn ekki með mér. Þá hefði mér sko liðið hræðilega. Ég bara er ekki að meika það að hafa þessa stóru bíla út um allt. Sérstaklega þá sem sýna ekki tillitsemi. Daginn sem ég kom heim af FSA með Óðinn þá mættum við líka svona risa ferlíki, og vitið þið hvað. Hann tók ekki háuljósin af. Við sáum gjörsamlega ekkert og þá munaði líka litlu að við færum útaf. Æ ég er bara svo pirruð á þessu. En það þýðir ekkert að vera að svekkja sig á þessu.

     


    » 4 hafa sagt sína skoðun

    30.10.2007 22:58:41 / -gob

    ???

    smá speki,er lífið helvíti og förum við svo til himna þegar við erum búin með okkar tíma í helvítinu??
    ég er ekki að segja að það sé allt slæmt á jarðríki, en einhvernvegin getur fólk yfirleitt ekki verið hamingjusamt með það sem það hefur....þeir sem eru fátækir þurfa að vera með áhyggjur alla daga yfir því að ná endum saman og þeir sem eru ríkir vita ekkert hvað þeir eiga að gera í lífinu og drekkja sér yfirleitt í veraldlegum hlutum sem þeir hafa ekkert við að gera, og þurfa alltaf að vera finna upp á einhverju til þess að gera...við þurfum að upplifa ömurlega hluti , fólk er brennt lifandi, afhausað, pyntað, nauðgað  og svona er hægt að telja endalaust, svo auðvita þurfum við að upplifa ástvinamissir, eirðarleysi, hungur, þráhyggju,alkóhólisma, þunglyndi og fleira... ef þú ert komin útúr einhverju slæmu þá tekur annað við, þetta er vítahringur...alltaf eitthvað sem er að bögga mann...og ef það er allt gott þá reynir maður oft að finna upp á einhverju til þess að láta sér líða illa yfir, því að maður bara kann einfaldlega ekki að láta sér líða vel....stundum getur einfaldlega verið auðveldara að vera niðurdreginn og óhamingusamur heldur en að vera glaður og hamingjusamur....er lífið helvíti? ég meina flestir sem hafa boðað himnaríki og hamingu hafa verið drepnir...t.d jesú og martin luther king, annar var krossfestur hinn skotinn til bana!! manneskjur eru furðulegar verur...það eru flestir alltaf að hugsa um að það væri nú gaman að geta hjálpað einhverjum.... eins og íslendingar eru að flytja inn flóttamenn frá ýmsum stöðum...ef allir í heiminum gætu bara lifað í sátt og samlyndi þá þyrfti nú örugglega ekki að bjarga svona mörgum....við erum að bjarga fólki frá öðru fólki....er það ekki svoldið sick?

    ég held að hvað sem það er sem kemur á eftir þessu helvíti hérna hlýtur að vera betra, það hlýtur að vera  til himnaríki!! 

    fannst svo mikið til í þessu að ég varð að setja þetta hérna inn á!..

    fékk þetta á http://herdisin.bloggar.is


    » 6 hafa sagt sína skoðun

    28.10.2007 12:31:49 / -gob

    úpps..blogga

    Hæ hæ og afsakið þetta blogg leysi hérna hjá mér. En það er bara búið að vera svo mikið að gera hérna hjá mér að ég hef ekki haft tíma til að blogga hérna. En það er allt gott að frétta af okkur mæðginunum. Við erum bæði hress og ég er næstum alveg búin að jafna mig eftir fæðinguna. Það er alveg æðislegt að vera orðin mamma. Guð hvað þetta er allt þess virði. Hehe nú er mér strax farið að hlakka til að sjá Óðinn fara að skríða en það kanski gerist ekki alveg á næstuni. En hann er orðinn svo duglegur þessi elska, hann er farin að ná til að halda höfðinu svoltið mikið, en ekki alveg nó til að seigja að hann sé búinn að ná því. Mér líður eins og ég hafi fengið hann í fangið í gær. Þetta er svo æðislegt lífið er orðið svo æðislegt. Ég er svo hamingjusöm. Samt er ég með svona smá mömmu stress. En ekkert alvarlegt. Jón, Fanney og Ari eru líka svo ánægð með hann. Og ekki síður mamma og pabbi. Þetta er bara yndislegt. En í dag á að gera hlut sem er ekkert sérstaklega skemtilegt að kveðja hann Vask. Ég mun sakna hanns svo mikið, hann er svo yndislegur hundur. En það er svo erfitt að vera með hann, eins og stendur á hjá mér. En hann fær sko gott heimili, og hann mun koma í heimsókn til mín annað slægið. Svo var ég að hugsa um að ná í vagninn. Og skreppa á göngu með Óðinn. En jæja veit ekki alveg hvað ég á að seigja meira, held líka að Óðinn vilji fara að fá mömmu sína heyrumst.

    p.s takk fyrir allar kveðjurnar

    Kveðja Guðrún og Óðinn

     

     


    » 4 hafa sagt sína skoðun

    19.10.2007 11:29:41 / -gob

    Hæ hæ

    Jæja þá er ég komin heim, loksinns þau vildu samt helst ekki sleppa mér í gær. Því ég er búin að vera svo veik eftir fæðinguna. En ég bara gat ekki beðið eftir því að komast heim. Nú er alveg nó að gera hjá mér, svo myndirnar koma ekki alveg strax en ég ætla að fara að setja inn einhverjar myndir af okkur, þegar ég hef tíma. Ég lét skíra hann í gær, og hann heitir Óðinn Fannar:). Ég er svo ánægð með litla drenginn minn, en ég kem með fæðingarsöguna síðar svo mikið að gera hjá mér núna að ég get ekki skrifað hana alla núna. En fæðingin gekk svona nokkuð vel, en ég varð samt mjög veik eftir fæðinguna. En jæja meira seinna kv.

    Guðrún og Óðinn Fannar:)

    TinyPic image

    :)litli prinsinn minn:)


    » 12 hafa sagt sína skoðun

    06.10.2007 22:49:11 / -gob

    40 vikur og 4 dagar

    pink flowerGuð hvað ég er orðinn þreyttur á þessari endalausu bið!pink flower

    pink flowerÉg er alltaf svo spennt þegar ég fæ verki, og oftast eru þeir hræðilega vondir!pink flower

    pink flowerEn svo er þetta bara plat.pink flower

    pink flowerÞað er samt ekki nema í mesta lagi 10 dagar í dag þar til ég verð sett af stað.pink flower

    love bear

    pink flowerÉg held samt að það þurfi ekki að setja mig af stað.pink flower

    pink flowerLjósan hreyfði við belgnum hjá mér á Fimmtudaginn ogpink flower

    pink flowersíðan þá hef ég verið með hræðilega og vonda verki.pink flower

    pink flowerSvo það getur verið að, þetta komi bara núna fljótlega.pink flower

    love bear

    pink flowerÉg var send eina ferðina en á FSA (fæðingardeildina) á Föstudaginn,pink flower

    pink flowerút af blóðþrýstingnum, því hann var orððinn skuggalega hár.pink flower

    pink flowerSérstaklega neðri mörkin.pink flower

    pink flowerSvo þau vilja fylgjast vel með mér, og ef hann verður svona hár áframm,pink flower

    pink flowerverð ég sennilega sett af stað. pink flower

    love bear

    pink flowerEn já þegar ég fór á FSA núna seinast þá mældu þau blóðþrýstingin,pink flower

     pink flowernokkuð fínann.pink flower

    pink flowerSvo hann er bara svona rokkandi, upp og niður það er ekki gott.pink flower

    pink flowerEn það eru allir bara mjög spenntir, þetta er rosa spennó.pink flower

    pink flowerÉg er sjálf bara að fara á taugum,pink flower

    pink flower ekki bara út af fæðinguni heldur ýmsum öðrum málum.pink flower

    love bear

    pink flowerEn ég held eins og ég segji að það sé ekki langt þangað til ég fari af stað sjálf.pink flower

    pink flowerMamma verður með fréttir á síðuni sinni pink flower

    www.blog.central.is/hoh

    pink flowerþegar þetta fer í gang.pink flower

    pink flowerSvo minni ég á síðuna hjá krílinu pink flower

    www.bumbubui07.barnaland.is

    love bear

    pink
    [[GUÐRÚN OG KRÍLIÐ]]
    pink

    i144656791_61349.gif
     


    » 10 hafa sagt sína skoðun

    03.10.2007 13:45:53 / -gob

    40-vikur og 1-dagur

    Jæja krílið lét ekki sjá sig 2.okt svo ég þarf að bíða kanski pínu lengur, en ég er viss um að þetta fari bara allt að koma. Ég get ekki beðið eins og flest allir í kringum mig. Ég fékk barnabílstólinn í dag. Það var ekkert smá fyndið þegar kallinn á póstbílnum kom með hann hingað að dyrunum, því kötturinn okkar hún Hnota sat á stéttini og stökk upp í póstbílinn. En sem betur fer fattaði kallinn á póstbílnum að kötturinn var inni svo hún fór ekkert að heiman. En hinn kötturinn okkar týndist núna fyrir 2 dögum. Við leituðum og leituðum út um allt. Hringdum og spurðum fólk hér í grend en ekkert gekk, svo um kvöldið fórum við mamma út að leita af Rósa, en fundum hann ekki. En þegar við komum heim þá var það firsta sem við sáum var hann. Vá hvað við vorum ánægð, við héldum að hann hefði bara dáið eða eithvað. En núna er hann aftur týndur hann hvarf sennilega í nótt. Ég er bara farin að halda að hann búi á tveimur stöðum. Eða hvað á maður að halda. Ég fer í mæðraskoðun á morgun vona bara að ég þurfi ekki að mæta hehe. Vona bara að þetta gerist í kvöld. Það er alveg hræðilega erfitt að ganga svona frammyfir. Það er mjög MJÖG erfitt að bíða eftir þessum litlu krílum. En ég minni á síðuna hjá mömmu www.blog.central.is/hoh mamma ætlar að byrta fréttir á síðuni sinni ef eithvað gerist núna snökt. Ég held sjálf að það sé mjög stutt í þetta. Sennilega er þetta bara seinasta bloggið mitt áður en ég verð mamma. En jæja verð að hætt. Heyrumst

    kv.

     

    *´¨;)
    ¸.•´¸.•*´¨;) ¸.•*¨;)
    (¸.•´ (¸.•´ Guðrún og Krílið 

     


    » 14 hafa sagt sína skoðun

    01.10.2007 11:40:34 / -gob

    1.okt í dag.. 2.okt á morgun:)

    Jæja þá er stóri dagurinn á morgun. Veit ekki alveg hvað gerist?. En ég vona bara það besta að litla krílið láti sjá sig. Ég fór í smá fjölskyldu ferð í gær með mömmu, pabba, Jón og Fanney. En Ari var ekki heima, hann var bara á Akureyri. Við fórum í heita pottin. Keyrðum svo í Fljótin og stoppuðum þar smá stund og fórum svo á Sigló. En stoppuðum bara stutt þar, svo bara aftur heim. Ég var svo hræðilega þreytt eftir þetta, þó ég hafi bara setið í bílnum næstum alla tímann. En ég gat sofnað í 2 tíma svo fór ég bara að hjálpa Fanney að læra og horfa á tv. En ég svaf næstum ekkert í nótt, var með frekar mikla verki, kúlan er alltaf að harna. Svo ef ég næ til að sofna einhvern smá tíma þá vakna ég við martraðir. En mamma mun setja inn fréttir á síðuna sína www.blog.central.is/hoh ef eithvað fer að gerast :). En jæja held að þetta sé nó í bili heyri í ykkur seinna.

     

    *´¨;)
    ¸.•´¸.•*´¨;) ¸.•*¨;)
    (¸.•´ (¸.•´ Guðrún og Krílið
     


    » 2 hafa sagt sína skoðun

    28.09.2007 11:52:57 / -gob

    3 dagar í stóra daginn :)

    Jæja þá ætla ég að blogga eithvað smá hérna, ég er orðin alveg endalaust þreytt á öllu. Ég fór í mæðraskoðun í gær, hún kom ekki vel út. Samt reyni ég allt sem ég get til að halda heilsuni. En þetta ætlar bara að versna ég var samt miklu betri þegar ég kom af fæðingardeildini eftir að ég lá inni, en svo virðist sem allt fer versnandi núna. Ég hvíði svo mikið fyrir hvað ef allt fer í rugl. Ef allt gengur ekki samkvæmt áætlun?. Ég held að ég fá taugaáfall ef eithvað gerist.

     

     Vil samt ekki vera að hræða ykkur en ég bara sef ekki sem best á nóttuni svo ég reyni að sofa líka eithvað framm eftir morgni, því ég á svo erfitt með að sofa og svo eru þessar endalausu martraðir að koma. Ekki er það neitt skárra að þurfa að glíma við einhver dramamál. En semsé er það eina sem ég á að gera er að liggja bara fyrir. En það er samt svo hræðilega leiðilegt. Ég hefði ekki trúað því að sumar meðgöngur væru svona erfiðar.

     

    Eins gott að meðgangan endar seigi ég nú bara. Það er svo mikið að aukaverkunum og sumar hverfa aldrei!. Eins gott að þetta sé þess virði. Ég get ekki beðið eftir litla krílinu, það er mjög skrítið að hugsa til þess að núna á næstu dögum er ég að fara að hitta manneskjuna sem er búin að vera að vaxa í maganum á mér í 9 mánuði. Þetta er búið að vera svo fræðandi ævintýri. Eins og ég seigi þá hefði ég ekki trúað þessu. Nú tekur við miklu stærra og meira verk frammundan hjá mér, en þið vitið öll hvað það er, það er móðurhlutverkið. Ég hlakka sko til þess eiginlega á mjög erfitt með að bíða. Það var ekkert smá fúlt að vera eina ólétta konan á fæðingardeildini, utan við þær sem komu inn óléttar og komu út með lítil börn, (þær sem voru í fæðingu).

    Krílið sæta

     

     Ég var nú bara smá abbó út í þær. En eins gott að litla krílið mitt fari að koma. En auðvitað veit ég að ég þarf kanski að bíða þar til á 42-viku. En ég tel það frekar ólíklegt. En á 37 viku þegar ég fór upp á deild þegar millibelgjavatnið fór, þá sagði ljósan við mig að ef barnið myndi fæðast núna væri það sirka 15 merkur og ég bara oki. En svo fór ég að pæla í því, að ef ég myndi ganga með í 42 vikur því barnið bætir við sig eina mörk á hverri viku, þá yrði það 20 merkur. En svo fór ég að ræða við ljósuna mína í gær um þetta.

    Krílið tásur<img src= 

     

     Og sem betur fer hættir það að bæta við sig einni mörk á hverri viku eftir 40 viku. Bætir bara á sig pínu minna. En hún sagði við mig að það yrði sennilega ekki stærra en 18 merkur en ég vonast bara eftir svona 14. Ég vona bara að ég sé með svona mikið vatn. En jæja ég held að ég sé bara búin að blogga frá mér allt vit. Ég reyni að láta vita hérna á síðuna þegar ég fer upp á fæðingardeild. En annars muni þið öruglega bara taka eftir því ef ég blogga ekki í heila viku, því þá er ég sennilega farin í gang. En jæja ég ætla að seigja þetta gott í bili.

    kv Guðrún og Krílið

     

    love him

     

     

     

     
     

     
     
     


    » 11 hafa sagt sína skoðun

    Síður: 1 2 3 ... 7
    Nýtt♥

    Nýtt;-06.10.07"th_073c57511.gif"

    -*Blogg"th_073c57511.gif"
    -*Myndir"th_073c57511.gif"
    -*Mánaðarins"th_073c57511.gif"
    -*Útlit"th_073c57511.gif"
    -*Skoðunarkönnun"th_073c57511.gif"
    -*Tónlist"th_073c57511.gif"

    -Guðrún"th_073c57511.gif"

    "thpinkheart.gif"

     

    Klukkan
    Dagatal
    febrúar - 2012
    S M Þ M F F L
    1234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    26272829
    FyrriNæsti
    Tónlist♥
    Tónlist;;

    "heartrobots.gif""""heartrobots.gif"